Færsluflokkur: Bloggar

Athugasemd send

Búinn að senda athugasemd til Kópavogsbæjar þar sem ég fer fram á að samskiptareglur verði settar um samskipti menntastofnana við trúfélög og stjórnmálaflokka. Ég vil ekki að söguskoðun einhvers prests sé innprentuð í börnin mín frekar en ég vilji að stjórnmálamaður innprenti söguskoðun í börnin mín. Það eiga að gilda sömu reglur um þessi fyrirbæri sem eru sama grein á sama tré. (Sjá líka http://joi.betra.is/?p=1549)
mbl.is Samskiptareglur við trúfélög ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér gleymir Mogginn að nefna

Mogginn gleymir í upptalningu sinni viðbrögðum múslima eftir árásina á kirkjuna um jólin, þar sem múslimar komu þúsundum saman í kirkjurnar og fyrir utan þær og mynduðu mannlegan skjöld utan um þær og sýndu samhug með kristnum. Sjá nánar Egypt's Muslims attend Coptic Christmas mass, serving as "human shields".
mbl.is Átök milli múslíma og kristinna í Kaíró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gleyma því að tippa

Tippleikur í gangi að sjálfsögðu, frír og auglýsingalaus fyrir vinahópa og vinnuhópa sem vilja. Glæðir áhuga á ótrúlegustu leikjum, maður fylgist með úrslitum Túnis-Alsír í handbolta ef maður veit að rétt úrslit geta skilað manni sjálfum stigum. Slóðin er http://leikir.betra.is/
mbl.is HM í handbolta á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei!

Þetta yrðu hrikaleg mistök af hálfu Wednesday. Frammistaða hans hjá West Ham er svo sorglega grátleg að Shakespeare myndi skammast sín fyrir tilfinningaklám. Wednesday er þegar gjaldþrota, þarf síst á öllu að halda manni sem kann ekki að fara með peninga.
mbl.is Eggert sagður í viðræðum vð Sheffield Wednesday
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frétt er frá 2005

Þessi frétt birtist líka á DV, þar setti ég inn comment um að fréttin sé 4 ára gömul, síðan 2005.

 http://news.bbc.co.uk/2/hi/uk_news/england/manchester/4351490.stm

 Þeir eyddu færslunni minni út þar sýnist mér, spurning hvað mogginn gerir.

 Þessi frétt er sumsé 4 ára gömul, en dúkkaði upp í "Most Read" hlutanum hjá BBC og "fréttamenn" DV.is og Mbl.is bara gera copy/paste án þess að kynna sér málið frekar


mbl.is Klósettslanga loks handsömuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki að leiðrétta fyrir alvöru í stað skítareddinga?

Eins og sjá má í síðustu færslu minni ætti Norðvestur að missa þrjá þingmenn og fara niður í 6, um leið ætti Suðvestur að fara í 16 þingmenn.

Nánari útreikningar hér.


mbl.is Misvægi minnkað næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjördæmasvindlið

Í fyrsta lagi þá er engin eftirsjá að Sigurði Kára.

Í öðru lagi þá er kjördæmaskiptingin galin. Norðvesturland hefur tvöfalt atkvæðavægi á við okkur í Suðvestur (Kraganum).

Tölurnar eru sumsé þessar:

KjördæmiKjörskráÞingmennatkv/þingmennvægi
Rvk N437841139801,2
Rvk S437481139771,2
SV582031248501,0
NV21294923662,0
NA283621028361,7
Su325051032511,5

Þarna fær sumsé lægsta gildið vægið 1 og svo hin reiknuð út frá því.

Til að laga þetta þannig að við förum nær því að ná 1 maður 1 atkvæði þá yrði þingmannaskiptingin svona:

KjördæmiÞingmennBreyting
Rvk N12+1
Rvk S12+1
SV16+4
NV6-3
NA8-2
Su9-1

Ef landið væri allt eitt kjördæmi þá hefðu úrslit kosninganna orðið aðeins öðruvísi:

(breytt, auð og ógild atkvæði tekin út úr útreikningi)

ListiAtkvæðiÞingmennÚtreikningurÞingmenn  Breyting
      
B2766999,319 0
D443691614,9315 -1
F414801,401
 +1
O1351944,555 +1
P110700,370
 0
S557582018,7719 -1
V405801413,6614 0

Þarna koma sumsé jöfnunarmenn inn í eftirfarandi röð:

Sjálfstæðisflokkur,  Samfylkingin, Borgarahreyfingin.

"Turnarnir þrír" græddu því mest á atkvæðamisvæginu og litlu flokkarnir fóru verst út úr því. Þetta sýnir að 5% jöfnunarreglan er bull sem hyglar hinum stóru en ekki þeim litlu eins og það var auglýst þegar lögin voru sett og sumir reyna að halda fram.

 Fyrri færsla sýndi þingmannatölur ef að auðir og ógildir hefðu verið inni í útreikningum, samkvæmt þeim fengju Lýðræðishreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn aukaþingmann hvor í staðinn fyrir þingmann Samfylkingar og Vinstri grænna.


mbl.is Sigurður Kári í sömu sporum og Mörður Árnason var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki XD í þetta sinn

Kíkti á kosningakompás mbl.is:

Flokkur Samsvörun
Borgarahreyfingin (O) 87%
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 83%
Samfylkingin (S) 78%
Lýðræðishreyfingin (P) 78%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 76%
Framsóknarflokkur (B) 72%
Sjálfstæðisflokkur (D) 58%

 

Það er eins og mig grunaði, núverandi forysta og stefna Sjálfstæðisflokksins höfðar ekki mikið til mín. Sem stendur er Borgarahreyfingin líklegust til að fá mitt atkvæði.

Líkt og aðrir Sjálfstæðismenn með bein í nefinu ætla ég ekki að veita honum brautargengi í núverandi mynd. Fátt er hollara en góð lexía, Sjálfstæðisflokkurinn og forystusveit hans á inni stóra lexíu.


Viljinn eða formið rétthærri?

Það er nú svo að þeir sem veljast í yfirkjörstjórnir eru stundum meira við hugann við formsatriði en vilja kjósenda. Í kosningum þar sem ég sá um umsjón talningar voru atkvæði þar sem viljinn kom skýrt fram en formgalli var á, úrskurðuð ólögleg.

Þá hafði kjósandi sumsé raðað fólki frá 1 upp í 8, en samkvæmt forminu átti aðeins að telja upp í 7. Mér fannst eðlilegast að vilji þessa kjósanda væri virtur og tölur hans frá 1 upp í 7 væru taldar til atkvæða. Formaður kjörstjórnar ákvað hins vegar að þetta væri klárlega ógilt atkvæði þar sem á því væri þessi formgalli.

Kjósandi sem lét vilja sinn í ljós var því sviptur atkvæði sínu fyrir þá sök að skrifa 8 við einn frambjóðandann.

Þau atkvæði sem eru hins vegar klárlega ógild (sömu tölur endurteknar, krotað yfir sömu númer, erfitt að sjá hver var endanleg niðurstaða, vísur og kvæði sem þannig persónugreina nafnlausar kosningar) eiga að sjálfsögðu að vera það, en það er varla persónugreinanlegt að hafa skrifað einni tölu meira en flestir aðrir (voru nokkur svona atkvæði þar sem farið var upp fyrir sjöuna).

Spurningin er, á atkvæðisrétturinn að njóta vafans eða formið sem kjörstjórn ákveður? Ég er klárlega á því að þetta atkvæði hafi verið löglegt og sýnt vilja kjósandans.

Hvað þetta varðar þá er nokkuð ljóst að það er formsatriði sem kjörstjórn hefur ákveðið með sjálfri sér að kjördæmið sé tekið fram, það er ekki að finna í lögum. Ef kjörstjórnir vilja að ákveðnum formlegheitum sé framfylgt eiga þær að gefa það út með leiðbeiningum og viðeigandi formum sem aðilar geta nálgast, ella eru þetta bara tiktúrur hjá þeim sem samræmist ekki lögum og lýðræðislegum hefðum.


mbl.is Kjörstjórn klofnaði í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Jóhannes Birgir Jensson

Höfundur

Jóhannes Birgir Jensson
Jóhannes Birgir Jensson

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 358

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband