28.3.2009 | 00:37
Bryndís úti
Það er skömm að sjá að í stað þess að Bryndís Haraldsdóttir færist upp í 7. sætið eftir brotthvarf Ármanns, þá stóð henni það ekki til boða. Hún virðist með bein í nefinu, kostur sem er sjaldgæfur meðal stjórnmálamanna, og lætur því ekki traðka á sér og tekur ekki sæti.
Kjördæmisráðið hefur þarna hlaupið á sig, að sjálfsögðu átti hún að færast upp fyrst Ármann tók sínu gengi svona illa, lopapeysan stuðaði fólk í öfuga átt miðað við það sem hefði gerst í Ameríkunni.
D-listi í Suðvesturkjördæmi birtur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jóhannes Birgir Jensson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
RÁNFUGLINN er nú ekki mikið að virkja hæfar konur í sínum flokk, manni lýður t.d. mjög illa að þurfa að horfa upp á karlpeninginn sem er í framboði í Reykjavík, þar höfnuðu kjósendur X-D flest öllum konum, ótrúegt en satt, ég vildi sjá endurnýjun og gefa hæfum konum tækifæri, af þeim 10 sem ég kaus þá voru 7 konur, en það kemur ítrekað fram að flokkurinn er í raun bara geldur & lokaður karlaflokkur - allt annað er bara fals & lýðskrum...
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson, 28.3.2009 kl. 00:58
Daginn...
Við sunnlendingar erum greinilega kvennsamari en aðrir landar... hafið þið ekki heyrt um "Kvennalista Árna Johnsen". Á lista Sjálfst. fl. í Suðurkjördæmi eru 3 komur í 4 efstu sætunum... þ.e. í 1. 3. og 4. sæti, Árni vermir 2. sætið.
Eigið góða helgi
Bryndís
Bryndís Gísladóttir (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 08:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.